Fimmtudagur, 6. desember 2007
Af leikhúsferðum
Undirrituð var stödd í leikhúsi síðastliðinn sunnudag, nánar tiltekið Borgarleikhúsinu. Ég var stödd á sýningunni Hér og Nú sem Sokkabandið stendur fyrir á Litla Sviðinu. Sýningin var mjög áhugaverð og skemmtileg en ekki verður farið nánar út í þá sálma.
Það er ekki oft sem hugur minn reikar í leikhúsi enda sit ég vanalega á sætisbrúninni og reyni að soga allann leikhúsandann sem ég kemst yfir á einni kvöldstund. Hins vegar gerðist það þó að ég missti athyglina eitt augnablik og varð starað á konu eina nokkuð langt frá mér.
Konan horfði áhugalaus á frumlega sýninguna og virtist hafa verið pínd þangað af Austur-þýskum pyntingarsérfræðingum. Hún fór að hreyfa sig frekar undarlega, sveigja sig og teygja þangað til hún var loksins komin í ásættanlega stellingu.
,,Mikið hlýtur angans konunni að leiðast" hugsaði ég með sjálfri mér og hugðist sogast aftur inn í töfraheim leikhússins en tók þá eftir einu; Konan var að koma sér vel fyrir..til að leggja sig.
Ég potaði í mitt fríða föruneyti sem var óvenju frítt að þessu sinni og öll gátum við sæst á það að konan væri sofnuð og þar svaf hún þangað til lófatak undir lok sýningarinnar vakti hana.
Þetta hlýtur að vera versti dómur sem leikari getur nokkurn tíman fengið, að fólki leiðist svo mikið að það vill frekar sofna innan um múg og margmenni heldur en að þurfa að horfa á sýninguna stundinni lengur.
Annars vona ég að blundurinn hennar hafi verið góður, þvíhún missti af fjári skemmtilegu leikriti!
www.hrebbna.blog.is
-og svefnpurrkurnar-
Um bloggið
Þar sem hressleikinn býr
Nýjustu færslur
- 21.5.2008 Af fótboltafári
- 3.5.2008 Af nátthröfnum
- 26.4.2008 Endalaus hamingja!
- 9.3.2008 Af innkaupaferðum
- 10.12.2007 Af jólahreingerningum
Tenglar
Ég um mig frá mér til...
- Gamla bloggsíðan Gömul og góð blogg frá 2003-2007
- MySpace síðan ...ég á myspace..eins og allir hinir
Aðrir áfangastaðir
- Forréttindi.is Freyja hinn mikli snillingur og verkefnið hennar
- FG Besti framhaldsskólinn
- Mímir Félag Íslenskunema
- Álftanesskóli Vinnan
- Féló Vinnan
- Leikhús.is ..allt um listina að leika
- Leiklist.is ..enn meira um listina að leika
Aðrar ritningar
- Anna..eða Lúlú..eða... ...í allri sinni dýrð...
- Regnbogabirta ,,,sem kallar sig allajafna Bryndísi
- Tinna frænka og pakkinn hennar ...litla frænkan sem er orðin stór..
- Steini Stuð ....kaffibarþjónn og elska...
- Eeeelín ...í Ikealandi
- Íslands eina von Mennta-og djammfélagið mikla
- Öskubuskuleikhópurinn bloggar Garðabær..bær hæfileikanna
- Emilía Kofoed Hansen Jensen Efraímsdóttir Langsokk Hun spiser dansk
- Elísa og Kristín í Afríku Hinir fræknu ferðalangar
- Erna eða FMJT í háloftunum Bloggandi flugfreyja og systir
- Dívurnar Hinn mikli vinkvennahópur og mitt annað heimili
- 1988 skvísur Þær kunna sko að skemmta sér
- Ína litla Brjáluð frænka Jósafats og Holgeirs...
- Inga mín Auðbjörg Eina rollan sem kann að tala
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hmm, þegar þú talar um frítt föruneiti.. ég man alls ekkert eftir þessari leikhúsferð, var það ég sem var sofandi kannski?? annars skil ég ekkert í fólki sem sofnar í leikhúsi eða bíói, tilgangurinn að borga sig inn til þess eins að fá sér blund, töluvert ódýrara að gera það bara heima hjá sér
sigrún björg 9.12.2007 kl. 21:48
Einu sinni svaf eg i leikhusi. Thad var a leikritinu brot. Allir adrir virtust elska thad. Nema Valgeir Skagfjord. Hann skildi thad ekki. Vandro.
inga ausa 25.2.2008 kl. 01:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.